|
Júdódeild Ármanns er sterk og öflug Júdódeild sem hefur verið starfrækt með áhuga og metnaði frá árinu 1957. Æfingar fara fram í glæsilegri aðstöðu deildarinnar sem er með þeim flottari í Evrópu. Júdó snýst um aga, fimi og tækni og leggur Júdódeild Ármanns mikið upp úr að því sé fylgt eftir enda þjálfarar á heimsklassa sem sjá um æfingarnar. En þrátt fyrir aðhald á æfingum er félagslíf deildarinnar ekki af verri endanum og andinn alltaf góður sem sést best á því að þó farið sé á æfingu hjá krílunum eða öldungunum þá er alltaf tekið vel á móti þér með góða skapinu og slegið á létta strengi.
|