Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

Vilt þú leggja hönd á plóg? Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Fimmtudagur, 11 Febrúar 2010 22:13
Það eru mörg handtök sem þarf að inna af hendi við uppbyggingu og rekstur öflugrar júdódeildar og eru þau meira og minna unnin í sjálfboðastarfi. Þessi störf eru af fjölbreyttum toga og eru unnin af stjórn félagsins, þjálfurum, starfsmönnum á mótum o.fl.

Það munar um alla sem vilja leggja hönd á plóg, hversu mikið eða lítið sem það er, því eins og við vitum þá vinna margar hendur létt verk.

Ef þú leggja þín lóð á vogarskálarnar þá er enginn skortur á verkefnum. Nú stendur t.d. fyrir dyrum aðalfundur Júdódeildarinnar, en eins og kemur fram hérna annars staðar á síðunni þá verður hann haldinn 25. þessa mánaðar. Þá verður kjörin stjórn, en það er tilvalinn vettvangur fyrir þá sem vilja koma að uppbyggingu þessarar öflugu og metnaðarfullu deildar.

Hafir þú áhuga á að taka þátt í starfi stjórnar eða á annan hátt taka þátt í starfi deildarinnar, þá endilega sendu póst á Helga Björgvins, formann deildarinnar, helgib(hjá)skyggnir.is, hafðu samband í GSM 859-1099 eða bara gríptu mig á æfingu.