|
Þriðjudagur, 03 Mars 2009 11:30 |
|
Innan Júdódeildar Ármanns er starfandi foreldrafélag. Hlutverk þess er að gæta hagsmuna barnanna í deildinni, halda utanum og stuðla að öflugu félagsstarfi, vera börnunum til halds og traust á mótum og aðstoða við framkvæmd þeirra sé þess þörf og að sjá um kaffisölu á mótum í Skelli en það er jafnframt tekjulind fyrir félagið.
Júdó er skemmtilegt tómstundagaman og holl hreyfing fyrir krakka á öllum aldri. JDÁ leggur metnað sinn í að allir iðkenndur séu sáttir við starf deildarinnar og líði vel á æfingum. Þar gegnir foreldrafélagið mikilvægu hlutverki. Foreldrar láta sig miklu varða hvað börnin þeirra eru að fást við. Til að stuðla að aukinni velferð barnanna og til að kynnast starfsemi JDÁ betur eru foreldrar því hvattir til að taka virkan þátt í starfsemi félagsins. Formaður foreldrafélagsins er Sigríður Dögg Guðjónsdóttir, s. 696 5297. En einnig er hægt að koma skilaboðum eða fyrirspurnum á framfæri á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Einnig skal bent á facebook-grúbbuna "Foreldrafélag JDÁ" þar sem komið verður skilaboðum á framfæri til foreldra um ýmislegt sem varðar barna- og unglingastarfið. Foreldrar eru eindregið hvattir til að skrá sig þar.
|