Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

flokkar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 27 Ágúst 2008 09:52

Meistaraflokkur

Í meistarflokki JDÁ er margt af besta júdófólki landsins. Meðlimir meistarflokks eru af ýmsum stærðum og gerðum en reynt er að leggja rækt við afreksfólk og þá sem ætla sér að ná langt í íþróttinni. Starfið er metnaðarfullt og vel er tekið á því.

Æfingartímar skv. tímatöflu

Þjálfarar: Vernarð Þorleifsson og Þorvaldur Blöndal

 

15+framhald

Hér æfa stálpaðir unglingar og fullorðið fólk sem ekki hyggur á keppni eða treystir sér ekki í átökin í meistaraflokki. Lögð er áhersla á tæknilega júdókennslu ásamt almennri heilsurækt, styrktar og þrekþjálfun

Æfingatímar skv. tímatöflu

Þjálfari: Yoshihiko Iura

 

15+byrjendur

Í vetur hyggst JDÁ bjóða uppá 6-8 vikna námskeið fyrir stálpaða unglinga og fullorðið fólk sem hefur enga fyrri reynslu af júdó-íþróttinni. Farið verður í grundvallaratriðið íþróttarinnar og þeirrar sjálfsvarnartækni sem hún felur í sér. Hér er líka um að ræða frábæra líkmsrækt. Þeir sem lokið hafa þessum námskeiðum geta síðan fært sig yfir í 15+framhald.

Æfingatímar skv. tímatöflu

Þjálfari: Tryggvi Gunnarsson 

 

11+framhald

Þessir tímar eru fyrir u.þ.b. 11-15 ára krakka sem hafa áður æft júdó eða hafa klárað byrjendanámskeið. Hér fer fram tæknilega kennsla og undirbúningur undir beltapróf en einnig er um að ræða holla hreyfingu og útrás fyrir krakkana. Lögð er áhersla á aga og virðingu fyrir þjálfara, félögum og umhverfi en líka að æfingarnar séu skemmtilegar og uppbyggjandi fyrir sál og líkama.

Æfingatímar skv. tímatölfu

Þjálfari: Yoshihiko Iura

 

11-15 ára byrjendur

Í vetur hyggst JDÁ bjóða uppá 6-8 vikna námskeið fyrir 11-15 ára unglinga sem hafa enga fyrri reynslu af júdó-íþróttinni. Ferið verur í grundvallaratriðið íþróttarinnar og krökkunum gefið tækifæri á mikilli hreyfingu og útrás. Lögð er áhersla á aga og virðingu fyrir þjálfara, félögum og umhverfi en líka að æfingarnar séu skemmtilegar og uppbyggjandi fyrir sál og líkama. Þeir sem lokið hafa þessum námskeiðum býðst síðan að færa sig yfir í 11+framhald

Æfingatímar skv. tímatöflu

Þjálfari: Helgi Björgvinsson

 

7-10 ára

Hér er 7-10 ára krökkum gefið tækifæri til að kynnast júdóíþróttinni og stunda mikla og holla hreyfingu. Lögð er áhersla á aga og virðingu fyrir þjálfara, félögum og umhverfi en líka að æfingarnar séu skemmtilegar og uppbyggjandi fyrir sál og líkama.

Æfingatímar skv. tímatöflu

Þjálfari: Tryggvi Gunnarsson 

 

Krílahópur

Á síðasta ári bauð JDÁ uppá tíma fyrir 4-6 ára krakka á laugardagsmorgnum og mæltust þeir vel fyrir. Hér er íþróttin kynnt fyrir krökkunum en tímarnir felast að mestu leyti í hreyfingu og leik.

Æfingar skv. tímatöflu

Þjálfari: Tryggvi Gunnarsson

 

Old-boys

Þessir tímar eru ætlaðir þeim sem komnir eru af léttasta skeiði, hafa gaman af því að stunda júdó en hafa ekki áhuga á átökunum í meistaraflokki. Fullorðið fólk sem hefur gaman af júdó og vill notafæra sér það sér til hreyfingar og heilsubótar er boðið velkomið í þessa tíma óháð fyrir reynslu af íþróttinni.

Æfingar skv. tímatölfu