Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

Þjálfarar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Mánudagur, 28 Júlí 2008 18:28

Yoshihiko Iura

Yoshihiko Iura er 7.dan í júdó og því hæst gráðaði júdómaður landsins. Hann kom fyrst til Íslands 1977 og var þá við júdókennslu á Íslandi í 2 ár. Iura hefur komið víða við á sínum farsæla ferli og væri og langt mál að telja það allt upp hér, en þó er vert að nefna að hann hefur starfað sem landsliðþjálfari Túnis, hjá Kodokan (mekka júdósins í Japan og þar með í heiminum) starfaði hann í fjögur ár og kenndi íþróttafræði á háskólastigi í Japan í 7 ár.

Sími: 864 3257

Netfang: yirua(hjá)itn.is

Þjálfun: Yfirþjálfari JDÁ, meistaraflokkur og unglingar.

 

 

 

 

Sævar Sigursteinsson

Sævar á að baki glæstan feril sem þjálfari og keppnismaður. Hann er margfaldur Íslandsmeistari, var á tímabili landsliðsþjálfari og hefur þjálfað meistaraflokk Ármanns með frábærum árangri í mörg ár. Sævar er rakari og rekur Hársnyrtistofuna Rún í Garðabæ. Hann er með svart belti, 3. Dan.

Sími: 861-1286

Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 Þjálfun: meistaraflokkur

 

 

Tryggvi Gunnarson

Tryggvi er viðskiptafræðingur að mennt. Hann byrjaði að æfa júdó vorið 1984 og hefur
verið viðloðandi þjálfun frá 1986 og séð um þjálfun flokka frá árinu 1988 sem gerir
hann einn af reynslu meiri þjálfurum landsins sérstaklega þegar kemur að þjálfun
barna og byrjenda. Tryggvi er með svart belti og tók 1.Dan í Febrúar 1992

Sími:  617 7612

Netfang: tryggvig(hjá)or.is

Þjálfun: börn yngri og kríli

 

 

Björn Sigurðarson

 Björn starfar við upplýsingatæknimál hjá Landsbankanum og er með svart belti, 1. Dan.

Sími: 825-6111

Netfang: bjorn.sigurdarson(hjá)gmail.com

 Þjálfun: börn yngri

 

 

Hinrik Sigurður Jóhannesson

Siggi er sálfræðingur að mennt og starfar hjá Capacent. Hann er með svart belti, 1. Dan.

Sími: 840-1239

Netfang: hinrik.johannesson(hjá)capacent.is

 Þjálfun: börn eldri og unglingar

 

 

Þorvaldur Blöndal

Þorvaldur er tölvunarfræðingur og hagfræðinemi. Hann er einn fremsti júdómaður landsins um þessar mundir og hefur unnið til 22 Íslandsmeistaratitla, þar af 16 í einstaklingsflokki og 6 í sveitakeppni, auk þess að hafa verið fyrirliði júdólandsliðsins. Hann hefur þvívegis orðið Norðurlandameistari og þrisvar unnið til gullverðlauna á smáþjóðaleikum.

Sími:  694 4869

Netfang: thorvaldur(hjá)internet.is

Þjálfun: meistarflokkur

 

Bjarni Skúlason

Bjarni er lögreglumaður. Hann er öflugasti júdómaður Íslands og hefur verið um nokkurt skeið. Hann er margfaldur Íslands- Norðurlanda- og Smáþjóðaleikameistari auk þess sem hann hefur náð góðum árangri á fjölmörgum öðrum erlendum mótum.

Sími: 891-9980

Netfang: skulason17(hjá)gmail.com

 Þjálfun: þrek- og styrktarþjálfun, landsliðsþjálfari