|
Laugardagur, 28 Febrúar 2009 22:28 |
|
Ármenningar sendu tvö lið til keppni í 1. umferð bikarkeppni JSÍ sem fram fór 28.2.2009 í húsnæði JR í Ármúlanum. Skemmst er frá því að segja að allar glímur unnust á fullnaðarsigri og þar með tryggðu bæði lið sér öruggann sigur í sínum riðlum og keppnisrétt í 2. umferð sem fram fer í maí. Lið Ármanns voru annars vegar skipuð þeim Stefáni Jökli Sigurðssyni, Tómasi Helga Tómassyni, Sveinbirni Jun Iura, Bjarna Þór Margrétarsyni og Birni Sigurðssyni og hins vegar Axel Kristinssyni (sérstaklega ánægjulegt að fá hann aftur á keppnisvöllinn), Eysteini Finnssyni, Birgi Pál Ómarssyni, Vigni Grétari Stefánssyni og Bjarna Skúlasyni. Nokkrar myndir frá keppninni má finna hérna og nánari úrslit ásamt myndskeiði með glæsitilþrifum má sjá hér að neðan.
|
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
|
Fimmtudagur, 26 Febrúar 2009 21:38 |
|
Þrjár tilkynningar teknar af heimasíðu JSÍ (jsi.is) Bikarkeppni seniora Bikarkeppni seniora fyrsta umferð verður laugardaginn 28. febrúar í JR í Ármúla 17a og hefst kl. 11:00. Vigtun á keppnisstað frá 9:30-10:00. Ellefu lið eru skráð til keppni og má búast við mótslokum um kl. 15:00. Dregið verður í riðla föstudaginn 27. febrúar Samæfing Um helgina er ráðgert að hafa sameiginlega æfingu í framhaldi af bikarkeppninni. Hún verður í JR næsta sunnudag (1.mars) frá kl. 10-12 og opinn fyrir alla 15 ára og eldri. Landsmót UMFÍ 2009 Landsmót UMFÍ, það 26. í röðinni, verður haldið á Akureyri dagana 9. til 12. júlí í sumar. Mótið verður sögulegt, því í ár eru liðin eitthundrað ár frá því að fyrsta Landsmót UMFÍ var haldið á Akureyri. Meðal keppnisgreina á mótinu verður júdó. Júdó-keppnin verður laugardaginn 11. júlí. Öll félög geta tekið þátt í mótinu. Nánari upplýsingar um mótið verða sendar út síðar. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Þriðjudagur, 24 Febrúar 2009 23:29 |
|
Fyrir nokkru var stofnum Facebook grúbba sem ber hið ágæta heiti "Júdódeild Ármanns". Meðlimir eru þegar orðnir 63 en það júdófólk hjá Ármanni og aðrir velunnarar deildarinnar sem ekki hafa þegar skráð sig eru hvattir til að gera það. Grúbbuna má finna með því að smella hérna. Einnig hefur verið stofnum grúbba fyrir Foreldrafélag JDÁ. Foreldrar barna hjá JDÁ og aðrir áhugamenn um starfsemi félagsins eru eindregið hvattir til að skrá sig þar. Grúbbuna má finna mð því að smella hér. Þess má síðan geta að Glímufélagið Ármann er líka með facebook grúbbu sem finna má hér. |
|
Föstudagur, 20 Febrúar 2009 12:05 |
Matsumae Cup fer fram nú um helgina í Kaupmannahöfn. Þrír Ármenningar eru skráðir til leiks en það eru þau Anna Soffía Víkingsdóttir, Birgir Páll Ómarsson og Sveinbjörn Iura. Auk þeirra munu Eiríkur Kristinsson, Hermann Unnarsson, Kristján Jónsson, Axel Jónsson, Jón Þórarinsson, Jósep Þórhallsson, Sævar Róbertsson, Ásgeir Þórsson og Þormóður Jónsson keppa á mótinu. Okkar fólki er óskað góðs gengis og vonandi fá við fréttir af mótinu strax um helgina. |
|
|
Þriðjudagur, 24 Febrúar 2009 23:49 |
|
Aðalfundur Júdódeildar Ármanns fyrir starfsárið 2008-2009 fór fram þriðjudagskvöldið 24.2.2009. Á dagskránni voru hefðbundinn aðalfundarstörf, þ.e. kynning á skýrslu stjórnar, samþykkt ársreiknings, kjör stjórnar og önnur mál.
Í skýrslu stjórnar kom fram að starfsemi deildarinnar var öflug og umfangsmikil á árinu (sjá hér), ársreikningu sýndi að fjárhagsleg staða er góð um þessar mundir og töluverð endurnýjun varð á stjórn deildarinnar. Þeir sem vilja kynna sér efni fundarins betur er bent á fundargerð sem finna má á spjallborðinu. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
Mánudagur, 23 Febrúar 2009 12:04 |
  Íslendingarnar sem tóku þátt í Matsumae cup um helgina (20.-22.2.2009) stóðu sig vel. Anna Soffía Víkingsdóttir sigraði opinn flokk kvenna en lenti í 5. sæti í -70kg flokknum og Þórmóður Árni Jónsson hlaut silfurverðlaun bæði í sínum þyngdarflokki (+100kg) og í opnum flokki. Lesa má um árangur annarra keppenda á heimasíðu júdósambandsins. Í lok móts hlaut íslenska liðið síðan bronsverðlaun fyrir heildarárangur liðsins en japönsk lið lentu í tveimur efstu sætunum. Verðlaunahöfum er óskað til hamingju og íslenska liðinu í heild fyrir frábæran árangur. |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Mánudagur, 16 Febrúar 2009 11:16 |
|
Nú á laugardaginn, 14.2.2009, fór fram KYU-mót og dómaranámskeið í húsnæði ÍR í Breiðholtinu. Ármenningarnir Sveinbjörn Jun Iura, Baldur Örn Halldórsson, Aron Gylfi Svavarsson og Örn Leó Jóhannsson unnu til gullverðlauna á mótinu en aðrir verðlaunahafar úr hópi Ármenninga voru þeir Helgi Þór Arason, Þráinn Kolbeinsson, Eyþór Björgvinsson, Alexander Már Brynjarsson, Jóhann Karl Hallsson, Valdimar Mikuel Þórsson, Gunnar Sundby og Ísak Örn Ívarsson. Nánari úrslit og stutt myndband með góðum töktum má sjá hér að neðan |
|
LAST_UPDATED2 |
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 7 af 13 |