Á döfinni

<<  September 2010  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930  

Nýlegar myndir

Innskráning



Velkomin á ippon.is
HM í júdó Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 01 September 2009 09:59

Anna Soffía og Margrét Bjarnadóttir á RIG 2009HM í júdó fór fram um helgina í Rotterdam í Hollandi. Eins og áður hefur komið fram hér á síðunni tók 2 Íslendingar þátt. Annars vegar var það Anna Soffía Víkingsdóttir úr Ármanni (-70kg kvenna) en hins vegar Þormóður Árni Jónsson úr JR (+100kg karla).  Bæði stóðu sig vel en Anna tapaði fyrir einni bestu júdókonu heims í 32 kvenna úrslitum og Þormóður sigraði andstæðing sinn í 32 manna úrslitum en tapaði fyrir sterkum Usbeka í 16 manna úrslitum.

 

LAST_UPDATED2
Lesa meira...
 
Opið hús, laugardaginn 29.ágúst kl. 11-13 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 26 Ágúst 2009 10:18

Opið hús verður um helgina hjá Júdódeild Ármanns á neðsu hæð Laugabóls við Gervigrasvöllinn í Laugardal. Húsið opnar kl. 11 laugardaginn 29. ágúst og skemmtunin mun standa yfir til kl. 13.  Þetta markar upphaf tímabilsins hjá okkur en almennar æfingar hefjast 31. ágúst.

Júdóiðkenndur og áhugamenn eru hvattir til að mæta og taka með sér gesti og fólk sem aldrei hefur komið nálægt júdóíþróttinni en hefur áhuga á að kynna sér hana er boðið sérstaklega velkomið.

Í boði verður m.a. júdósýning, leikir fyrir krakkana og uppákomur af ýmsu tagi og svo verður boðið uppá grillaðar pylsur.

Þeim sem mæta á staðinn stendur til boða fríir prufutímar í júdó og sérstak afsláttartilboð á æfingagjöldum verður fyrir þá sem ganga frá skráningu og greiðslu æfingagjalda á staðnum.

Mætum öll og tökum með okkur gesti.

LAST_UPDATED2
 
Anna og Bjarni Smáþjóðleikameistarar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 03 Júní 2009 21:01
Seinni dagurinn í einstaklingskeppninni í júdó á Smáþjóðaleikunum var í dag (3.6.2009). Anna Soffía (Ármanni) og Bjarni Skúlason (Ármanni) náðu frábærum árangri og unnu til gullverðlauna án þess að tapa glímu. Axel Kristjánsson (Ármanni) og Kristján Jónsson (JR) kepptu einnig í dag en Axel tapaði sínum glímum og Kristján þurfti að hætta keppni vegna meiðsla. 3 gull í einstaklingskeppninni hlýtur að teljast mjög ásættanlegur árangur og er verðlaunahöfum og öðrum keppendum óskað til hamingju.  Á föstudaginn fer fram sveitakeppni og þar munu íslensku keppendurnir tefla fram sveit sem er til alls líkleg.  Nánar má lesa um atburði dagsins á heimasíðu JSÍ (hérna og hérna).
LAST_UPDATED2
 
Smáþjóðaleikarnir 2009 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 13 Maí 2009 09:40

Smáþjóðaleikarnir fara fram á Kýpur í byrjun júní. Eftirfarandi hafa verið valdir til að keppa fyrir Íslandshönd í júdó:

-60kg Axel Kristinsson, Ármanni

-66kg Ingi Þór Kristjánsson, JR

-73kg Kristján Jónsson, JR

-81kg Sveinbjörn Jun Iura, Ármanni

-90kg Bjarni Skúlason, Ármanni/Jósep Þórhallsson, JR

-100kg Jósep Þórhallsson, JR/Bjarni Skúlason, Ármanni

-70kg Anna Soffía Víkingsdóttir, Ármanni

 
Anna Soffía og Þórmóður á leið á HM Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 26 Ágúst 2009 10:13

Nú um næstu helgi munu þau Anna Soffía Víkingsdóttir og Þormóður Jónsson keppa á HM í júdó sem fram fer í Rotterdam í Hollandi.

Anna Soffía mun mæta gríðarlega erfiðum andstæðingi í fyrstu glímu á laugardaginn en það er Lucie Decosse frá Frakklandi en hún er núverandi Evrópumeistari, silfurverðlaunahafi frá síðustu Ólympíuleikum og fyrrverandi heimsmeistari svo fátt eitt sé nefnt.

Þormóður mætir Semic Pepic sem er Ástralskur ríkisborgari og hefur 5 sinnum orðið Eyjaálfumeistari.

Önnu og Þormóði er óskað alls hins besta og frekari fréttir af árangri þeirra munu birtast hér á síðunni um helgina.

 
Jósep Þórhallsson með gull á Smáþjóðaleikunum Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Miðvikudagur, 03 Júní 2009 00:54
Jósep Þórhallsson (JR) stóð sig frábærlega og vann til gullverðlauna í -100kg flokki á Smáþjóðaleikunum á Kýpur í dag. Birgir Páll Ómarsson (Ármanni) keppti í -81kg flokki og lenti í 4. sæti sem verður að teljast góður árangur. Ingi Þór Kristjánsson (JR) keppti einnig í dag í -66kg flokki en komst ekki uppúr sínum riðli. Lesa má meira um þetta í frétt á heimasíðu JSÍ og einnig má sjá nánari úrslit hérna.
 
Anna og Bjarni með brons á NM Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Þriðjudagur, 12 Maí 2009 12:15

Anna Soffía Víkingsdóttir og Bjarni Skúlason unnu til bronsverðlauna á Norðurlandamótinu í júdó sem fór fram 9.-10. maí síðastliðinn. Í ungmennaflokki unnu Sævar Róbertsson og Ásgeir Þórsson úr JR til siflurverðlauna og Helga Hansdóttir, KA til bronsverðlauna.

Bjarni Skúlason Anna Soffía

Anna varð efst í sínum riðli en tapaði fyrir eistneskri stelpu í undanúrslitum og Bjarni tapaði fyrir einum sterkasta júdómanni heims Alexei Budolin frá Eistlandi.

Nánari úrslit og upplýsingar um keppnina má sjá hérna

LAST_UPDATED2
 
«ByrjaFyrra12345678910NæstaEndir»

Síða 5 af 13